Gunnar Einarsson og Erla Þorsteinsdóttir best

Jón N. Hafsteinsson var valinn besti varnarmaðurinn í karlaliðinu, Davíð Þór Jónsson fékk verðlaun fyrir mestu framfarir og Halldór Halldórsson var valinn besti nýliðinn.
Hjá stelpunum var Ingibjörg Lára Gunnarsdóttir með mestu framfarir og Birna Valgarðsdóttir besti varnarmaðurinn.
Skemmtileg verðlaun voru svo veitt fyrir þá leikmenn sem voru með bestu mætinguna í sjúkraþjálfun og fengu þau sjúkratösku að gjöf en það voru þau Jón N. Hafsteinsson og María Anna Guðmundsdóttir.