Gunnar Einars leikur 30. Evrópuleikinn í kvöld
Keflvíkingar leika gegn sænska liðinu Norrköping í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld.
Gunnar Einarsson mun þar leika sinn þrítugasta Evrópuleik, en enginn íslenskur leikmaður hefur náð þeim áfanga áður. á karfan.is er eftirfarandi samantekt á ferli Gunnars í Evrópukeppnum:
Gunnar lék sinn fyrsta Evrópuleik 15. september 1999 þegar hann lék með sameiginlegu liði Keflavíkur og Njarðvíkur undir merkjum ÍRB. Andstæðingar þeirra voru enska liðið London Leopards og sigraði ÍRB örugglega 111-75 og skoraði Gunnar 9 stig í leiknum. Gunnar lék 5 af leikjum ÍRB en eftir að Keflvíkingar hófu þátttöku undir eigin merkjum haustið 2003 hefur Gunnar leikið alla leiki liðsins og er því leikurinn í kvöld sá þrítugasti. Gunnar hefur mest skorað 28 stig í einum leik en það var árið 2004 í leik gegn Reims frá Frakklandi í leik á heimavelli sem vannst 93-73 en samtals hefur hann skorað 285 stig í þessum 29 leikjum.
Í þessum leikjum hefur Gunnar leikið víða um Evrópu eins og sjá má á meðfylgjandi korti. Madeira og Ovar í Portúgal, Hyeres, Dijon og Reims í Frakklandi, London í Englandi, Fribourg í Sviss, Århus í Danmörku, Riga í Lettlandi, Lappeenranta í Finnlandi og Novy Jicin eru allt borgir sem Gunnar hefur leikið í auk Reykjanesbæjar.
Næstir á eftir Gunnari í leikjafjölda eru Sverrir Þór Sverrisson með 25 leiki, þar af 2 með Snæfelli, Jón N. Hafsteinsson er með 24, Magnús Þór Gunnarsson 23 og Helgi Jónas Guðfinsson 23 fyrir Grindavík, Antwerpen frá Hollandi og Ieper frá Belgíu. Þá er Arnar Freyr Jónsson kominn með 20 leiki.
Á karfan.is má einnig sjá viðtal við Gunnar.
Þetta er þriðji leikur Keflavíkur í keppninni en þeir hafa tapað báðum leikjunum til þessa. Stuðningsmenn eru hvattir til að mæta og láta vel í sér heyra.
Leikurinn fer fram í Sláturhúsinu í Keflavík og hefst kl. 19.15.
VF-mynd úr leik Keflavíkur og Bakken Bears