HSS
HSS

Íþróttir

Gunnar á bekknum hjá Ipswich
VF mynd Eyþór Sæmundsson
Fimmtudagur 26. júlí 2012 kl. 11:14

Gunnar á bekknum hjá Ipswich

Grindvíkingurinn Gunnar Þorsteinsson sem er á mála hjá Ipswich Town í ensku fyrstu deildinni í knattspyrnu sat á bekknum hjá aðalliðinu í gær er liðið mætti Cambridge United í æfingaleik.

Gunnar, sem er 18 ára gamall, gekk til liðs við Ipswich síðasta sumar frá Grindavík, en síðan þá hefur hann átt gríðarlega góðu gengi að fagna. Hann var m.a. valinn besti leikmaður unglingaliðsins bæði af félaginu og stuðningsmönnum félagsins, en ásamt því hefur hann verið að leika með varaliðinu og gegnt hlutverki fyrirliða hjá u-18 ára liðinu.

 


 
Bílakjarninn
Bílakjarninn