Bygg
Bygg

Íþróttir

Gull og silfur á heimsmeistaramótinu í dansi
Silfurhafarnir í flokknum Mini Small Group Song & Dance
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
miðvikudaginn 29. júní 2022 kl. 10:00

Gull og silfur á heimsmeistaramótinu í dansi

Team DansKompaní vann gull og silfur á heimsmeistaramótinu í dansi. Atriðið Yfir Vestfirðina vann heimsmeistaratitil í flokknum Children Small Group Song & Dance. Dansarar í atriðinu voru þær Aðalbjörg Ósk, Andrea Ísold, Bryndís Björk, Emma Rún, Freyja Marý, Heiðrún Lind, Katla Dröfn, Rebekka Dagbjört, Sonja Rós og Valgerður Pálína.
Atriðið Pólar Express vann einnig til silfurverðlauna í flokknum Mini Small Group Song & Dance. Þær Ástrós Tekla, Elísabet, Halla Björk, Heiðdís, Helena Rós, Hugrún, Hildigunnur, Pálína Hrönn, Valgerður Ósk og Viktoría Sól voru dansarar í því atriði. 

Elma Rún Kristinsdóttir er höfundur beggja dansatriðanna og segir hún ekki hafa búist við þessum maganaða árangri en engu að síður stolt af frammistöðunni. „Það er svo ótrúlega gaman að uppskera svona eftir alla vinnuna og undirbúninginn á bak við þetta. Við erum búin að æfa atriðin vel og mikið alveg frá því í janúar, fyrst fyrir forkeppnina sem var haldin í Borgarleikhúsinu 14. mars sl. Þar komust öll okkar atriði áfram til Spánar og héldum við því áfram að æfa þau og fínpússa eftir forkeppnina. Þetta hafa alveg verið strembnar og erfiðar æfingar fyrir unga krakka. Mér finnst alltaf skipta lang mestu máli að öllum líði vel og hafi gaman. Þá gengur alltaf lang best,“ segir Elma. 

Elma Rún danshöfundur

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Mótið er haldið í San Sebastian á Spáni að þessu sinni og alls eru yfir 5.000 dansarar frá 37 löndum sem keppa í hinum ýmsu flokkum. Team DansKompaní á 24 atriði á mótinu og eru keppendur liðsins á aldrinum sex til tuttugu og þriggja ára. Keppnin hófst föstudaginn 24. júní og stendur yfir í viku. Átta atriði Team DansKompaní eiga því enn eftir að stíga á svið og er viðbúið að þau nái góðum árangri.

Myndband af keppnisatriði heimsmeistaranna má sjá hér að neðan.

Heimsmeistarar í flokknum Children Small Group Song & Dance.