Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Guðrún og Heiðar sigra á Margeirsmótinu
Föstudagur 25. nóvember 2005 kl. 14:44

Guðrún og Heiðar sigra á Margeirsmótinu

Púttmót var haldið í gær, 24. nóv, og var það minningarmót um Margeir Jónsson frumkvöðuls púttsalarins í RÖSTINNI og rak hann í tuttugu ár, allt þar til hann lést þann 19. júlí 2004. 38 keppendur mættu til leiks og urðu sigurvegarar sem hér segir:

Konur:
1. sæti Guðrún Halldórsdóttir á 67 höggum
2. sæti Regína Guðmundsdóttir á 67 höggum
3. sæti Sesselja Þórðardóttir á 70 höggum

Guðrún vann Regínu í bráðabana. Sesselja vann Unni Óskarsdóttur í bráðabana en hún var einnig með 70.
Flest bingó voru þær Ása Lúðvíksdóttir og Guðrún Halldórsdóttir með, eða 9. Guðrún vann Ásu í bráðabana.

Karlar:
1. sæti Heiðar Viggósson á 64 höggum
2. sæti Guðmundur Ólafsson á 66 höggum
3. sæti Hólmgeir Guðmundsson á 66 höggum

Þrír voru jafnir í 2-3 sæti þeir Jóhann Pétursson, Guðmundur og Hólmgeir.
Flest bingó var Heiðar Halldór Viggóson með eða 10.

Verðlaun voru veitt af börnum Margeirs sem og farandsbikar og færa púttarar þeim bestu þakkir.

Næsta mót er afmælismót Púttklúbbs Suðurnesja, sem verður haldið 8. desember n.k og hefst kl 13:00.

Mynd úr safni VF. Frá mótinu í fyrra.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024