Guðný Petrína í úrvalsliði
Guðný Petrína Þórðardóttir, knattspyrnukona úr Keflavík var í dag valin í úrvalslið fyrstu 6 umferða Landsbankadeildarinnar. Guðný hefur svo sannarlega verið á skotskónum í ár og hefur skorað 7 mörk í 5 leikjum. Hún er tveimur mörkum á eftir Margréti Láru Viðarsdóttur, besta og markahæsta leikmanni umferðanna 6. Þessi frammistaða varð til þess að hún var valin í landsliðshóp Íslands fyrir síðustu leiki.
Að vísu lýkur 6. umferð ekki fyrr en í kvöld með þremur leikjum, en Keflavík sækir þar Fjölni heim.
Lið umferða 1-6 var sem hér segir:
Markvörður:
Guðbjörg Gunnarsdóttir – Valur
Varnarmenn:
Guðný Óðinsdóttir - Valur
Embla Grétarsdóttir - KR
Ásta Árnadóttir - Valur
Katrín Jónsdótir - Valur
Tengiliðir:
Edda Garðarsdóttir - KR
Katrín Ómarsdóttir - KR
Dóra María Lárusdóttir - Valur
Guðný Petrína Þórðardóttir - Keflavík
Framherjar:
Margrét Lára Viðarsdóttir - Valur
Anna Björg Björnsdóttir - Fylkir
Þjálfari umferða 1 – 6:
Elísabet Gunnarsdóttir- Valur
Stuðningsmannaverðlaun umferða 1 – 6:
Stuðningsmenn Fylkis.
VF-mynd/JBO - Guðný í kröppum dansi gegn ÍR