Guðni Emilsson með þrenn verðlaun á NMU
Guðni Emilsson, sundmaður úr ÍRB, náði frábærum árangri á Norðurlandameistaramóti Unglinga í Finnlandi nú um helgina.
Hann vann til alls þrennra verðlauna, en langt er síðan íslenskur sundmaður hefur afrekað slíkt á þessu móti.
Guðni hóf mótið á laugardagsmorgninum með því að vinna bronsverðlaun í 200m bringusundi á frábærum tíma 2,17,25, þar sem hann bætti sig um 1,5 sekúndu.
Eftir hádegið vann hann til silfurverðlauna í 50m bringusundi á frábærum tíma, 28,97 sek, en Íslandsmetið í greininni er 28,22.
Með þessum árangri varð hann fjórði íslenski sundmaðurinn í sögunni til þess að fara undir 29,00 sek í 50 bringusundi og einnig sá fjórði til að fara undir 2,18,00 í 200m bringusundi.
Á sunnudeginum vann hann síðan til þriðju verðlaunanna. Silfurverðlaun með frábæru sundi í 100m bringusundi 1,02,99 sem er nýtt íslenskt piltamet í greininni og aðeins 17/100 frá gullverðlaununum.
Þessi tími í 100m bringusundi skipar honum í 5. sætið yfir besta árangur Íslendings í 100m bringusundi. Sérlega glæsilegt mót hjá Guðna sem á eflaust eftir að verða eitt af stóru nöfnunum í íslensku sundlífi.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, liðsfélagi Guðna, keppti einnig á mótinu. Hann var alveg við sinn besta árangur í 50m og 100m baksundi en bætti sinn fyrri árangur í 200m baksundi um tæplega sekúndu, Davíð er á yngri árinu á þessu móti sem spannar tvö ár þannig að hann kemur eflaust til með að berjast um verðlaun á næsta ári.