Guðmundur Steinarsson til Njarðvíkinga
Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Steinarsson, hefur tekið þá ákvörðun að segja skilið við Keflvíkinga og færa sig yfir til Njarðvíkinga í 2. deild. Guðmundur mun á næstu leiktíð leika með Njarðvíkingum í 2. deildinni ásamt því að sinna aðstoðarþjálfarastöðu liðsins. Nú fyrir stundu skrifaði Guðmundur undir samning þess eðlis.
Guðmundur er bæði leikja- og markahæsti leikmaður Keflavíkur í efstu deild með 244 leiki og 81 mark. Hann lék einnig 11 leiki með Fram í úrvalsdeildinni á sínum tíma og spilaði um skeið með KA, Brönshöj í Danmörku og Vaduz frá Liechtenstein í efstu deild í Sviss. Guðmundur lék 3 A-landsleiki og 20 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Guðmundur er mikill fengur fyrir Njarðvíkinga.