Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Guðmundur Steinarsson íþróttamaður Keflavíkur 2008
Föstudagur 2. janúar 2009 kl. 13:36

Guðmundur Steinarsson íþróttamaður Keflavíkur 2008



 
Guðmundur Steinarsson knattspyrnumaður var kjörinn íþróttamaður Keflavíkur í hófi sem haldið var fyrir áramót í félagsheimili Keflavíkur. Guðmundur Steinarsson er fyrirliði Keflavíkur í meistaraflokki karla sem var svo nálægt því að taka titilinn í ár. Guðmundur spilaði 21 leik á Íslandsmótinu í sumar og varð markakóngur Íslandsmótsins með 16 mörk og hlaut þar með gullskóinn. Lék 3 leiki í bikarkeppninni og skoraði þar 2 mörk. Hlaut afgerandi kosningu sem besti leikmaður Íslandsmótsins í umferðum 1-7 og var að sjálfsögu í liði umferðanna. Var í liði umferðanna 15-22. Var kosinn leikmaður ársins hjá knattspyrnudeild Keflavíkur á lokahófi í október sl. Var valinn í A-landsliðið og spilaði þar tvo leiki. Guðmundur kom inná í leik Noregs og Íslands (HM2010) í Noregi en þeim leik lauk með jafntefli 2-2. Svo var það vináttu landsleikur á Möltu gegn heimamönnum og lauk þeim leik með sigri Íslands 0-1. Til að kóróna svo tímabil Guðmundar, þá var hann valinn leikmaður ársins á Íslandsmótinu 2008 á lokahófi KSÍ í október sl.


Íþróttamenn einstakra deilda eru eftirfarandi:


Guðmundur Steinarsson
Knattspyrnudeild

Karen Guðnadóttir
Badmintondeild

Gunnar Einarsson
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson
Sunddeild Keflavíkur

Jón Steinar Brynjarsson
Taekwondó

Jón Reynir Andrésson
Skotdeild Keflavíkur

Berglind Björk Sveinbjörnsdóttir
Fimleikadeild Keflavíkur


Mynd af vef Keflavíkur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024