Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Guðmundur og Ómar áfram með Njarðvík
Fimmtudagur 8. október 2015 kl. 07:30

Guðmundur og Ómar áfram með Njarðvík

Guðmundur Steinarsson verður áfram aðalþjálfari meistaraflokks Njarðvíkur í knattspyrnu og Ómar Jóhannsson verður honum áfram til aðstoðar. Guðmundur tók við liðinu haustið 2013 og Ómar kom til liðs við UMFN sem aðstoðar- og markmannsþjálfari veturinn 2014.

Stjórn deildarinnar hefur frá því að Íslandsmótinu lauk farið vandlega yfir stöðu mála og leikmannahóps. Unnið hefur verið markvisst í að festa þann kjarna í leikmannahópnum sem hefur verið hvað lengst hjá liðinu. Fimm leikmenn hafa þegar gengið frá nýjum samningum, þeir Ari Már Andrésson, Brynjar Freyr Garðarsson, Gísli Freyr Ragnarsson, Stefán Birgir Jóhannesson og Theodór Guðni Halldórsson. Arnór Svansson, Davíð Guðlaugsson og Styrmir Gauti Fjeldsted voru þegar komnir með samninga.

Stefnt er að því að festa fleiri leikmenn á næstunni en það er stefna okkar að gera mun betur en á síðasta sumri og til þess þurfum við að styrkja leikmannahópinn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024