Bygg
Bygg

Íþróttir

Guðmundur Leo og sveit Íslands með nýtt Íslandsmet á HM
Guðmundur Leo Rafnsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Símon Elías Statkevicius settu Íslandsmet í 4x50 metra skriðsundi í morgun. Mynd af Facebook-síða SSÍ
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 13. desember 2024 kl. 09:48

Guðmundur Leo og sveit Íslands með nýtt Íslandsmet á HM

Guðmundur Leo Rafnsson, sundmaður úr ÍRB, var í blandaðri boðsundssveit Íslands sem keppti í 4x50 metra skriðsundi á heimsmeistaramótinu í sundi í morgun. Sveitin gerði sér lítið fyrir og setti nýtt Íslandsmet á tímanum 1:34,12.

Með Guðmundi Leo í sveitinni voru þau Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Símon Elías Statkevicius.

Guðmundur Leo átti einnig sæti í boðsundssveit Íslands í fjórsundi sem keppti í gær og endaði á tímanum 1:44,06. Sveitin var alveg við Íslandsmetið í greininni, 1:43,84, og hafnaði í nítjánda sæti. Þess má geta að Guðmundur Leo synti undir unglingametinu sínu í 50 metra baksundi í fyrsta spretti en það met er ekki gilt þar sem um er að ræða blandaða boðsundsveit, þar sem tvær konur og tveir karlar eru í sveitinni. Sveit Íslands skipuðu þau Guðmundur Leó Rafnsson, Snorri Dagur Einarsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Vala Dís Cicero.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Stuðst við fréttir á Facebook-síðu Sundsambands Íslands.