Guðmundur frá í 4 til 6 vikur
Guðmundur Jónsson leikmaður meistaraflokks Njarðvíkur í körfu meiddist undir lok síðasta leiks gegn ÍR-ingum á sunnudagskvöld. Guðmundur lenti á fæti leikmanns ÍR-inga og snéri sig illa á ökkla og var fluttur á sjúkrahús í kjölfarið.
Guðmundur bíður eftir því að komast í nánari rannsóknir og vona menn að hvorki sé um brot eða slit að ræða en samkvæmt fyrsta mati má gera ráð fyrir því að Guðmundur verði frá í 4 til 6 vikur. Guðmundur hefur verið með 14,5 stig, 3,3 fráköst og 2,2 stoðsendingar að meðaltali í leik þetta tímabilið og er fjarvera hans vissulega skarð fyrir skildi í Njarðvíkurliðinu. Þessu er greint frá á umfn.is.