Guðmundur Bragason tekur við Grindavíkurstúlkum
Guðmundur Bragason verður næsti þjálfari Grindavíkurkvenna í efstu deild körfuboltans en hann tekur við starfinu af Braga Magnússyni sem lét af stöfum á dögunum. Þetta hefur vefsíðan Karfan.is eftir áreiðanlegum heimildum úr Grindavík. Á meðan fjarveru Braga stóð stýrði Ellert Magnússon liðinu en Guðmundur er nú tekinn við.
Guðmundur er flestum kunnur sem fylgst hafa með körfubolta en hann er fyrrum leikmaður Grindavíkur og á fjölda landsleikja að baki. Guðmundi til aðstoðar með liðið er bandaríski leikmaður Grindavíkurkvenna, Crystal Smith, samkvæmt frétt karfan.is