Bygg
Bygg

Íþróttir

Guðmundur besti leikmaðurinn 2008
Sunnudagur 19. október 2008 kl. 14:57

Guðmundur besti leikmaðurinn 2008

Guðmundur Steinarsson, fyrirliði Keflavíkur í knattspyrnu, var í gær útnefndur besti leikmaðurinn í Landsbankadeild karla árið 2008 á lokahófi KSÍ. Guðmundur átti mjög gott tímabil með Keflavík, skoraði 16 mörk í 21 leik, en Keflavík var aðeins hársbreidd frá því að standa uppi sem sigurvegarar í deildinni.

Guðmundur var einnig valinn í lið ársins hjá KSÍ, ásamt Hólmari Erni Rúnarssyni og Guðjóni Árna Antoníussyni úr Keflavík.

Hjá konunum var Dóra María Lárusdótti úr Val valin besti leikmaðurinn. Jóhann Berg Guðmundsson og Hlín Guðmundsdóttir, bæði úr Breiðablik, voru valin efnilegust.

VF-MYND/JJK: Guðmundur Steinarsson er besti leikmaðurinn 2008.

Bílakjarninn
Bílakjarninn