Guðlaugur með 30 stig í stórsigri
Grindvíkingar unnu stórsigur á nýliðum Hattar á heimavelli sínum í gær, 108-70. Leikurinn varð aldrei spennandi þar sem heimamenn léku sér að lánlausum Héraðsbúum.
Guðlaugur Eyjólfsson, einn af stórskyttum Grindvíkinga átti eftirminnilegan leik þar sem hann setti 10 þriggja stiga körfur úr 17 tilraunum, en auk hans áttu nafnarnir Páll Kristinsson og Páll Axel Vilbergsson góða spretti.
Ekki stóð steinn yfir steini hjá Hetti þar sem þeirra aðalmaður, Eugene Christopher, skoraði einungis 7 stig og hitti úr 2 af 22 tilraunum sínum utan af velli. Viðar Örn Hafsteinsson hélt þó uppi heiðri þeirra og skoraði 29 stig.
Staðan í hálfleik var 50-33 og fyrir síðasta leikhluta var hún 82-58. Grindvíkingar eru því í öðru sæti deildarinnar á eftir Njarðvíkingum.