Guðlaugur fingurbrotinn
Guðlaugur Eyjólfsson, leikmaður Grindavíkur í Iceland Express deild karla, fingurbrotnaði s.l. sunnudag er Grindavík sigraði Skallagrím í undanúrslitaleik bikarkeppninnar.
Brotnaði Guðlaugur á litla putta og mun ekki leika með félögum sínum í Grindavík í kvöld er þeir halda í Hólminn til að leika gegn Snæfell. Þá mun Guðlaugur einnig missa af leik Grindvíkinga gegn Hetti sem fram fer á Egilsstöðum.
Guðlaugur stefnir þó að því að æfa fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Keflavík þann 18. febrúar og vera með í þeim leik.