Bygg
Bygg

Íþróttir

Guðlaugur Eyjólfsson leikur aftur með Grindavík
Föstudagur 15. ágúst 2008 kl. 10:36

Guðlaugur Eyjólfsson leikur aftur með Grindavík

Þriggjastigafæribandið og Grindvíkingurinn Guðlaugur Eyjólfsson hefur tekið fram skóna að nýju og mun leika með Grindavík.  Þetta staðfesti Guðlaugur í samtali við Karfan.is en hann fluttist nýverið með fjölskyldu sinni aftur heim til Grindavíkur eftir sex ára dvöl í Reykjavík.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Ég var eitthvað að sprikla með þeim í sumar en Grindavíkurliðið hóf æfingar að fullu eftir Verslunarmannahelgi. Ég er að reyna að komast í eitthvað form svo maður eigi séns í þessa kappa,” sagði Guðlaugur sem býst við því að Grindavíkurliðinu verði spáð velgengni á næstu leiktíð.

 

,,Það kæmi ekki á óvart því við erum með sterka einstaklinga og lítum vel út á pappírum en það er ekki nóg, það eru sumir komnir á aldur og það getur allt gerst í þessu, t.d. meiðsli,” sagði Guðlaugur en viðurkennir að það hlyti að vera krafa á Grindavíkurliðið að stefna á alla titla.

 

Guðlaugur lék síðast með Grindavík leiktíðina 2005-2006 og þá lék hann 17 deildarleiki og gerði að jafnaði 12,7 stig í leik.


Af karfan.is.