Bygg
Bygg

Íþróttir

Guðjón: Það er enginn ósigrandi
Föstudagur 11. apríl 2008 kl. 13:52

Guðjón: Það er enginn ósigrandi

Guðjón Skúlason vann þá ófáa stórtitlana með Keflvíkingum bæði sem leikmaður og þjálfari en nú þegar Keflavíkurliðið er komið með bakið upp við vegg gegn ÍR segir Guðjón að sínir menn þurfi að sýna af sér meiri grimmd. Guðjón vill meina að Keflavíkurliðið þurfi að leika betur saman sem lið og að menn þurfi að vera þolinmóðir. Keflavík og ÍR mætast í sínum þriðja leik í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í kvöld kl. 19:15 í Toyotahöllinni. Ósigur þýðir að leiktíðin sé á enda hjá Keflavík en er Guðjón með töfralausnina?
 
,,Keflavík þarf að ná að stýra leiknum, ÍR hefur stýrt þessu í tveimur fyrstu leikjunum. Nú þurfa Keflvíkingar að mæta kokhraustir í leikinn, vera ákveðnir en mér hefur fundist vanta alla grimmd í tvo fyrstu leikina hjá þeim,” sagði Guðjón í samtali við Víkurfréttir.
 
,,Mér finnst Keflavíkurliðið ekki vera að vinna nægilega vel saman og það er kannski það sem er að há þeim. Það er því kannski óhætt að segja að Suðurnesjaliðin Keflavík og Grindavík séu að glíma við sama vandamálið. Þetta hefur verið of erfitt hjá Keflavík á meðan leikur ÍR rennur ljúft áfram,” sagði Guðjón og segir það hugsanlegt að Keflvíkingar hafi mætt afslappaðri en ÍR í seríuna.
 
,,Eftir að hafa unnið Þór Akureyri 2-0 í fyrstu umferð biðu þeir í viku en á meðan komu ÍR úr hörkuseríu gegn KR. Að mínu mati komu Keflvíkingar of afslappaðir til leiks og skutu sig í fótinn í fyrsta leiknum. Fyrsti leikurinn í öllum seríum er ofboðslega krítískur og Keflvíkingar töpuðu heimaleikjaréttinum á klúðri. Ég vænti þess í kvöld að það komi allir sterkir til leiks og að einhver taki að sér að leiða liðið og það verður að vera leikstjórnandinn eða Magnús. Þá þarf einhver af þessum stóru leikmönnum að taka einhverja ábyrgð. Liðið þarf að vinna leikinn en ekki einhver einn einstaklingur,” sagði Guðjón og hvetur Keflvíkinga til þess að vera þolinmóðir.
 
,,ÍR hefur hlaupið eða hægt á fyrstu tveimur leikjunum þegar þeir vilja og þar þarf Keflavík að komast inn í þetta. ÍR-ingar hafa fengið frí skot gegn svæðisvörninni og það þarf að stoppa. Þá hafa Keflvíkingar hangið meira á boltanum og þeir þurfa meiri hreyfingu í sinn leik og þaf af leiðandi þurfa ÍR-ingar að hafa meira fyrir varnarleik sínum. Menn þurfa að vera þolinmóðir og fá góð skot upp því sem kerfin eru að bjóða,” en margar hverjar sóknir Keflavíkur hafa verið tilviljanakennar og einkennst af einstaklingsframtaki.
 
,,Menn verða að taka miklu meira á í vörninni en ég veit ekki hvort maður á mann vörn dugi ein og sér en kannski þarf að mixa þessu meira upp og knýja ÍR til að hugsa meira,” sagði Guðjón og sér nú fram á breytta tíma því þegar hann var leikmaður var ÍR sjaldan mikil fyrirstaða.
 
,,ÍR er að sjá séns sem þeir hafa ekki séð í einhver 30 ár en hér áður fyrr var maður alltaf viss um að klára ÍR í fyrstu tveimur leikjunum eða með herkjum í þriðja leik. Nú eru þeir orðnir svangir og eru að spila flott en það er enginn ósigrandi.”
 
Keflavík-ÍR
Leikur 3
Toyotahöllin kl. 19:15 í kvöld
 
VF-Mynd/ [email protected]Guðjón Skúlason fyrrum leikmaður og þjálfari Keflavíkur segir að það sé enginn ósigrandi.
Bílakjarninn
Bílakjarninn