Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Guðjón Skúlason og Jón Halldór hættir
Mánudagur 11. apríl 2011 kl. 12:13

Guðjón Skúlason og Jón Halldór hættir

Guðjón Skúlason, þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfuknattleik, hefur ákveðið að segja skilið við þjálfun liðsins eftir núverandi keppnistímabil. Þetta er ákvörðun sem hann tekur á eigin forsendum og á meðal annars rætur sínar að rekja til árangur liðsins á núliðnu keppnistímabili, segir á heimasíðu Keflavíkur. Hann hefur stýrt liðinu samfellt síðustu tvö tímabil og á sínu fyrsta tímabili kom hann Keflavíkurliðinu í oddaleik gegn Snæfell í úrslitum. Á núliðnu tímabili datt liðið út í hörkurimmu gegn KR í 4-liða úrslitum.

Eins og einnig hefur komið fram í fjölmiðlum, þá mun Jón Halldór Eðvaldsson ekki gefa kost á sér sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfuknattleik. Hann hefur ákveðið að þetta sé orðið gott eftir 5 ár og ætlar að hætta á toppnum. Liðið varð tvisvar Íslandsmeistari undir hans stjórn.
Það eru því tvö stór skörð sem að fylla þarf í hjá Körfuknattleiksdeild Keflavíkur fyrir næsta keppnistímabil. Engin ákvörðun hefur verið tekin hjá stjórn um framhaldið og verður farið í þessi mál eins fljótt og auðið er, segir jafnframt í fréttinni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Efri mynd: Guðjón Skúlason á bekknum hjá Keflavík í vetur. Jón Halldór og Falur Harðarson, þjálfarar kvennaliðs Keflavíkur fagna á hinni myndinni.

VF-myndir/páll orri og pket.