Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Guðjón kominn í 200 leiki fyrir Keflavík
Föstudagur 9. september 2016 kl. 14:13

Guðjón kominn í 200 leiki fyrir Keflavík

Bakvörðurinn knái Guðjón Árni Antoníusson náði þeim merka áfanga að leika sinn 200. leik fyrir Keflavík á dögunum. Hann er aðeins sjötti leikmaðurinn til þess að ná þeim áfanga. Heimsíða Keflavíkur greinir frá.

Guðjón Árni lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Keflavík þann 8. júlí árið 2002 en það var heimaleikur gegn Grindavík í efstu deild.  Þeim leik lauk með 2-2 jafntefli þar sem Hólmar Örn Rúnarsson og Kristján H. Jóhannsson skoruðu mörk Keflavíkur.  Deildarleikir Guðjóns nú orðnir 200 talsins en 170 þeirra eru í efstu deild en 30 í þeirri næstefstu en hann hefur skorað 11 mörk í þessum leikjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Guðjón lék einnig 33 deildarleiki með FH á árunum 2012-2014 en hann hóf ferilinn á heimaslóðum í Garðnum og lék þá 11 deildarleiki með Víði. Deildarleikir Guðjóns Árna eru því orðnir 244.

Eins og áður sagði er Guðjón sjötti leikmaðurinn í sögu Keflavíkur til að leika 200 deildarleiki fyrir félagið. Þar er efstur á blaði Sigurður Björgvinsson með 250 leiki, Óli Þór Magnússon kemur næstur með 245 leiki og síðan Guðmundur Steinarsson með 244. Magnús Sverrir Þorsteinsson hefur leikið 242 leiki og er enn að og Gestur Gylfason lék á sínum tíma 207 deildarleiki fyrir félagið.