Íþróttir

Guðjón Árni í hvíld eftir höfuðhögg
Guðjón Árni í leik með Keflavík á sínum tíma. Hann er á sínu öðru ári í herbúðum FH. VF-Mynd
Þriðjudagur 25. júní 2013 kl. 15:02

Guðjón Árni í hvíld eftir höfuðhögg

Guðjón Árni Antoníusson, sem kemur úr Garðinum, mun ekki leika með Íslandsmeisturum FH næstu daga eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg. Hann hefur tvívegis fengið höfuðhögg á tímabilinu. Fótbolti.net greinir frá þessu.

Samkvæmt læknisráði á Guðjón að taka sér tveggja vikna frí frá keppni og æfingum. Guðjón fékk síðara höfuðhöggið gegn Stjörnunni á fimmtudag og hann var uppi í stúku í leiknum gegn Fylki í gærkvöldi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Ég fékk heilahristing gegn ÍBV um daginn og var búinn að jafna mig á því. Ég var 10 daga í algjörri hvíld eftir það,“ sagði Guðjón Árni við Fótbolta.net í dag.

„Ég fékk síðan aftur högg á höfuðið gegn Stjörnunni og þá eru vinnureglur hjá læknunum að taka tveggja vikna pásu þar sem púlsinn má ekki fara upp. Þetta er hundleiðinlegt en ef maður horfir á þetta stærra samhengi þá er betra að geta hreyft sig í framtíðinni. Maður hefur heyrt af Guðrúnu Sóleyju landsliðskonu og fleirum sem eru ennþá með höfuðverki. Maður vill ekki lenda í því.“

Hér má lesa frétt Fótbolta.net um málið.