Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Guðjón Árni Antoníusson tekur við Víði
Þriðjudagur 20. júní 2017 kl. 08:16

Guðjón Árni Antoníusson tekur við Víði

- Guðjón Árni er fæddur og uppalinn í Garðinum

Víðir í Garði hefur komist að samkomulagi við Guðjón Árna Antoníusson um að taka við þjálfun meistaraflokks félagsins út tímabilið 2017.

Guðjón Árni er fæddur og uppalinn í Garðinum og byrjaði sinn meistaraflokksferil með Víðir árið 2000. Guðjón lagði skónna á hilluna í vetur og hefur verið í þjálfarateymi Keflavíkur síðan ásamt því að þjálfa 2. flokk karla hjá Keflavík. Guðjón er menntaður Íþróttafræðingur við Háskólann í Reykjavík og starfar sem íþróttakennari við Myllubakkaskóla í Keflavík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Guðjón Árni á yfir 240 leiki í efstu deild með Keflavík og FH. Guðjón varð Íslandsmeistari 2012 með FH og tvisvar orðið bikarmeistari með Keflavík 2004 og 2006. Guðjón spilaði sem fyrirliði fyrir bæði liðin.

Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun samnings fyrr í dag. Frá vinstri, Sólmundur Ingi Einvarðsson formaður Víðis, Guðjón Árni Antoníusson þjálfari Víðis, Jón Oddur Sigurðsson varaformaður Víðis.