GRV tapaði fyrir Fylki
GRV, sameiginlegt lið Grindavíkur, Reynis og Víðis, mátti sætta sig við 1-4 tap á heimavelli gegn Fylki í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í gær.
Fylkir tóku stjórnina strax í byrjun og skoruðu tvö mörk í fyrri hálfleik og bættu við tveimur í viðbót í upphafi þess seinni. GRV-stúlkur skoruðu svo sitt eina mark rétt fyrirlok leiks, en þar var að verki Linda Ósk Kjartansdóttir.
GRV er í 8. sæti deildarinnar eftir þennan leik með 9 stig eftir 10 leiki.
Sjá stöðuna í deildinni.
VF-mynd úr leik GRV og Keflavíkur fyrr í sumar/Hilmar Bragi