GRV í úrslit Íslandsmótsins
GRV stúlkur í 3. flokki tryggðu sér sæti í úrslitaleiikmnum um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta með sigri á Keflavík á Sandgerðisvelli í gær, 1-0. Þær mæta geysisterku liði Breiðabliks á ÍR velli á morgun kl. 12. Auk þess tryggðu þær sér Suðurnesjameistaratitilinn.
Leikurinn í gær var æsispennandi og einkenndist af mikilli baráttu, en eina mark leiksins skoraði Guðbjörg Eva Guðjónsdóttir um miðjan seinni hálfleik.
Sannarlega glæsilegur árangur hjá sameinuðu liði Grindavíkur, Reynis og Víðis, en þær unnu einnig Faxaflóamótið í upphafi sumars. Leikurinn á morgun verður gríðarlega erfiður og eru stuðningsmenn liðsins hvattir til að mæta á völlinn.
VF-Myndir/Þorgils (Úr leik)