GRV hrósar sigri í Deildarbikarnum
Konur í meistaraflokki GRV, sameiginlegu liði Grindavíkur, Reynis og Víðis, hrósuðu um helgina sigri í C-deild deildarbikarkeppninnar í knattspyrnu, en þær unnu alla leiki sína í keppninni. Sá síðasti var gegn HK/Víkingi og lauk honum 3-1.
Þetta er frábær árangur hjá liðunum sem hafa náið samstarf upp alla kvennaflokka. Forsvarsmenn liðsins sjá í þessu mikil tækifæri þar sem nú geti stúlkur leikið með sínu liði alla leið upp í meistarflokk og telja framtíðina bjarta.