Grindvíkingar yfir í hálfleik í Bakú
Grindvíkingar eru yfir, 2:0, í hálfleik gegn azerbajska liðinu Vilash í seinni leik þeirra í Intertoto-keppninni, en hann fer fram í Bakú í Azerbajdzhan. Fyrri viðureignina, sem fram fór í Grindavík um síðustu helgi, unnu heimamenn 1:0 og hafa því 3:0 samanlagt. Mæta þeir svissneska félaginu Basel komist þeir áfram.
Mörk Grindvíkinga í Bakú hafa skorað þeir Paul McShane á 12. mínútu og Sinisa Kekic á 18. mínútu.
Morgunblaðið greindi frá.
Mörk Grindvíkinga í Bakú hafa skorað þeir Paul McShane á 12. mínútu og Sinisa Kekic á 18. mínútu.
Morgunblaðið greindi frá.