Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindvíkingar steinlágu á heimavelli
Þriðjudagur 26. október 2004 kl. 11:22

Grindvíkingar steinlágu á heimavelli

Njarðvíkingar tóku toppsætið í Intersport-deildinni í körfuknattleik í gærkvöld þegar þeir sigruðu Grindvíkinga 64-87 í Röstinni. Grindvíkingar voru sterkari aðilinn í 1. leikhluta en gestirnir tóku öll völd á vellinum eftir það með Pál Kristinsson og Matt Sayman í broddi fylkingar.

Justin Miller, miðherji Grindvíkinga var sterkur í upphafi leiks og skoraði níu fyrstu stig heimamanna. Hörkuleikur virtist vera í uppsiglingu að loknum fyrsta leikhluta er Grindvíkingar leiddu 21-17.

Njarðvíkingum var ekki til setunnar boðið og tóku Matt Sayman og Páll Kristinsson til sinna ráða og Njarðvíkingar hófu 2. leikhluta á því að skora 11 stig í röð án þess að heimamönnum tækist að svara. Páll Kristinsson gerði 12 stig í þessum leikhluta og Njarðvíkurliðið í heild spilaði grimma maður á mann vörn og lokuðu vel á flestar sóknaraðgerðir Grindvíkinga. Þegar liðin gengu til leikhlés höfðu Njarðvíkingar náð 14 stiga forskoti með því að vinna 2. leikhluta 9-27.

Í seinni hálfleik var jafnara með liðunum en Grindvíkingum tókst ekki að saxa á það forskot sem Njarðvíkingar höfðu byggt upp. Darrel Lewis var ekki svipur hjá sjón í liði Grindavíkur en hann gerði einungis 15 stig í leiknum. Páll Kristinsson var besti maður vallarins en hann skoraði 31 stig og tók 15 fráköst. Matt Sayman virðist falla eins og flís við rass í Njarðvíkurliðinu og eftir fjórar umferðir er hann næstefstur í deildinni í fjölda stoðsendinga með 32 talsins, þremur stoðsendingum á eftir Haukamanninum Sævari Haraldssyni.

Einar Árni Jóhannsson var ánægður í leikslok og þakkaði góðri vörn stigin tvö. „Ég átti von á jafnari leik, við lögðum upp með að spila góða vörn og í kvöld voru allir samstíga í því markmiði,“ sagði Einar. Aðspurður hvort Njarðvíkingar hefðu lagt sérstaka áherslu á það að stöðva Darrel Lewis svaraði Einar því neitandi. „Markmiðið var að spila grimma vörn og það hafa aðrir leikmenn í Grindavíkurliðinu en Darrel Lewis og Páll Axel reynst okkur erfiðir en það var ekki sérstök áhersla lögð á það að stöðva Darrel,“ sagði Einar að lokum.

„Annað liðið kom tilbúið í leikinn, ekki hitt,“ sagði Kristinn Friðriksson þjálfari Grindvíkinga. „Njarðvíkingar voru með yfirburði á öllum sviðum og þetta var bara einn af þessum dögum, “ sagði Kristinn og bætti því við að endurskoða þyrfti alla mögulega hluti í fari Grindavíkurliðsins fyrir næsta leik. 

Tölfræði leiksins

VF-myndir/ Þorgils Jónsson

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn