Mánudagur 24. september 2012 kl. 09:21
Grindvíkingar steinlágu
Grindavík tapaði enn einum leiknum í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í gær. Að þessu sinni gegn Valsmönnum á útivelli en lokatölur urðu 4-1, Valsmönnum í vil. Hafþór Ægir Vilhjálmsson kom Grindvíkingum yfir í leiknum en það dugði skammt.