HSS
HSS

Íþróttir

Grindvíkingar sóttu stig í Garðabæ
Miðvikudagur 2. desember 2015 kl. 22:28

Grindvíkingar sóttu stig í Garðabæ

Héldu út þrátt fyrir áhlaup heimakvenna

Grindvíkingar gerðu góða ferð í Garðabæ þar sem þeir báru sigurorð af Stjörnunni 58-68 í Domino's deild kvenna í körfubolta í kvöld. Þar með unnu þær sinn þriðja sigur í röð og halda þriðja sætinu í deildinni.

Munurinn var 14 stig fyrir gestina frá Grindvík í hálfleik en Stjörnustúlkur náðu að jafna leikinn áður en þriðja leikhluta lauk, staðan 50-50 þegar fjórði leikhluti hófst. Grindvíkingar reyndust svo sterkari á lokasprettinum, héldu Stjörnunni í átta stigum á meðan þær gulklæddu skoruðu 18 stig.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Grindvíkingar eru áfram í þriðja sæti deildarinnar og eru nú eru með fjögurra stiga forskot á Keflvíkinga.

Tölfræði leiksins