Íþróttir

Grindvíkingar sömdu við átta leikmenn
Efri röð frá vinstri. Jónas, Jankó, Hlynur Ægir, Sigurður Bjartur, Ævar Andri, Daníel Andri, Sigurvin Hrafn, Óli Stefán, Rúnar S. Neðri röð frá vinstri: Arnór Einar, Ástþór Andri, Ingi Steinn.
Mánudagur 30. nóvember 2015 kl. 15:15

Grindvíkingar sömdu við átta leikmenn

Grindvíkingar sömdu við sína efnilegustu drengi í fótboltanum um helgina. Leikmennirnir sem eru allir að hefja leik í öðrum flokki karla sömdu til þriggja ára.

Það var Jónas Þórhallsson formaður knattspyrnudeildar sem skrifaði undir fyrir hönd knattspyrnudeildar Grindavíkur. Jónas ræddi við leikmennina um þá Evrópuleiki sem félagið hefur leikið og nefndi hvað einstaklingsæfingar og sjálfsagi væri mikilvægur á þessum aldri til að ná árangri.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Áður hafði félagið samið við tvo efnilega drengi úr keflavík, þá Arnór Breka Atlason og Ólaf Inga Jóhannson.

Strákarnir átta sem nú skrifuðu undir þriggja ára samning við félagið eru: Ingi Steinn Ingvarsson, Daníel Andri Tegeder Pálsson, Sigurvin Hrafn Elíasson, Ásþór Andri Valtýsson, Hlynur Ægir Guðmundsson, Sigurður Bjartur Hallsson, Ævar Andri Öfjörð og Arnór Einar Georgsson.