Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindvíkingar sigursælir í júdó
Björn Lúkas Haraldsson vann til gullverðlauna.
Miðvikudagur 12. febrúar 2014 kl. 09:45

Grindvíkingar sigursælir í júdó

Fimm keppendur frá Grindavík tóku þátt í Afmælismóti Júdósambands Íslands síðastliðinn sunnudag. Þeir Aron Snær Arnarsson, Björn Lúkas Haraldsson, Guðjón Sveinsson, Haraldur Mariuson og Helgi Heiðarr Sigurðsson voru meðal keppenda yngri flokka og kræktu sér þar í tvenn bronsverðlaun, tvenn silfurverðlaun og ein gullverðlaun. Frá þessu er greint á heimasíðu Grindavíkurbæjar.

Haraldur keppti í -38 kg flokki U13 ára. Þar voru sex keppendur og skipt var í tvo þriggja manna riðla. Hann vann sinn riðil örugglega og vann í framhaldi af því undanúrslitaglímuna eftir mikla baráttu en tapaði svo úrslitaglímunni og endaði því í 2. sæti.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Helgi Heiðarr keppti í -50 kg flokki U13 ára og átti fyrstu fyrstu glímu mótsins og jafnframt þá lengstu en hún stóð í 4:26 mínútur, en venjuleg glíma er um tvær mínútur. Hann tapaði þó þeirri glímu á gullskori. Tapaði hann einnig seinni glímunni eftir harða rimmu. Þrír keppendur voru í flokknum og hlaut hann því bronsverðlaun. Þess má geta að Haraldur og Helgi voru báðir að keppa á sínu fyrsta júdómóti.

Aron Snær keppti í -66 kg flokki U15 ára. Þar voru þrír keppendur. Hann vann aðra glímuna sína en tapaði hinni eftir erfiða glímu og hlaut hann því silfur.

Guðjón keppti í -73kg flokki U21 árs. Þar voru fimm keppendur. Hann vann fyrstu glímuna örugglega en tapaði þeirri seinni og endaði í þriðja sæti.

Björn Lúkas keppti í -81 kg flokki U21 árs. Þar voru fjórir keppendur. Björn Lúkas tapaði fyrstu glímunni sinni en vann tvær í kjölfarið af öryggi. Innbyrðis viðureignir fóru svo að hann vann gullverðlaun í þeim flokki.