LHG
LHG

Íþróttir

Grindvíkingar sendu Njarðvíkinga í sumarfrí
Pargo sýndi oft NBA tilþrif gegn Njarðvík. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 14. apríl 2026 kl. 21:53

Grindvíkingar sendu Njarðvíkinga í sumarfrí

Njarðvíkingar eru komnir í sumarfrí en Grindvíkingar í undanúrslit í Bónus-deild karla í körfubolta. Grindvíkingar unnu þriðja leikinn í röð í spennandi viðureign í IceMar höllinni. Lokatölur 84-91 og viðureignin 3-1 fyrir UMFG.

Heimamenn byrjuðu leikinn vel og leiddu með ellefu stigum eftir fyrsta leikhluta 28-17.

Grindvíkingar svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta þar sem Óli Óla dúndraði niður þristum og tóku hann með þrettán stigum. Staðan í leikhlé 39-43.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Seinni hálfleikur var síðan allur mjög jafn þó Grindvíkingar væru alltaf aðeins á undan. Njarðvíkingar minnkuðu muninn í tvö stig þegar tvær mínútur voru eftir. Á lokakaflanum voru gestirnir úr Grindavík sterkari þar sem heimamenn hittu ekki nógu vel þegar þeir höfðu tækifæri til að minnka muninn og freista þess að ná sigri eða framlengingu. Framlag bestu manna Grindvíkinga eins og Pargo var betra en bestu manna Njarðvíkinga. Þar var munurinn í lokin. 

Njarðvíkingar eru því komnir í sumarfrí. Þeir voru í neðsta sætinu í 8-liða úrslitunum en gáfu efsta liðinu, deildarmeisturum Grindavíkur góða viðureign.

Dwayne Lautier-Ogunleye var stigahæstur hjá UMFN með 21 stig, Sven Smajlagic var með 17 og Milka með 16.

Hjá UMFG skoraði Jordan Semple 23 stig, Jermy Pargo var með 19 stig og Ólafur Ólafs 15.

Grindvíkingar fá Keflavík eða Val í undanúrslitum.

Njarðvík-Grindavík 84-91 (28-17, 15-28, 21-23, 20-23)

Njarðvík: Dwayne Lautier-Ogunleye 21/5 fráköst, Sven Smajlagic 17/5 fráköst, Dominykas Milka 16/15 fráköst, Luwane Pipkins 15/5 fráköst, Veigar Páll Alexandersson 12, Snjólfur Marel Stefánsson 3, Guðmundur Aron Jóhannesson 0, Brynjar Kári Gunnarsson 0, Sigurður Magnússon 0, Ómar Orri Gíslason 0, Bóas Orri Unnarsson 0, Almar Orri Jónsson 0.
Grindavík: Jordan Semple 23/5 fráköst, Jeremy Raymon Pargo 19/8 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 15/9 fráköst, Daniel Mortensen 11/10 fráköst, Kristófer Breki Gylfason 10, Deandre Donte Kane 10/7 fráköst, Valur Orri Valsson 3, Ragnar Örn Bragason 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0, Arnór Tristan Helgason 0, Patrekur Atlason 0.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Jón Þór Eyþórsson
Áhorfendur: 1145
Viðureign: 1-3

Grindvíkingar voru vel studdir af sínu fólki.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar