Grindvíkingar semja við ungan bakvörð
Oddur Rúnar Kristjánsson, 19 ára bakvörður frá Breiðablik, hefur samið við Grindavík um að leika með liðinu á næstu leiktíð í Dominos deild karla í körfubolta. Karfan greinir frá.
Oddur hefur lengst af í yngri flokkunum leikið með KR en færði sig yfir til Breiðabliks á síðustu leiktíð. Oddur skoraði 14,8 stig í leik og skaut ágætlega fyrir utan þriggja stiga línuna eða 2/6 í leik sem gerir um 34% nýtingu.