Grindvíkingar með sannfærandi sigur í Ljónagryfjunni
Nú í kvöld mættu Njarvðíkingar Grindavík í 1. umferð Iceland-Express deildar karla í körfubolta og urðu lokatölur 68:84 fyrir Grindavík.
Grindvíkingar tóku forystuna snemma leiks og héldu henni út allan leikinn og má segja að sigurinn hafi aldrei verið í hættu. Stigahæstur í liði Grindvíkinga var Andre Smith með 25 stig hann átti einnig 10 stoðsendingar og 9 fráköst. Í liði Njarðvíkinga skoraði Antonio Houston mest eða 13 stig þrátt fyrir að hafa aðeins spilað 20 mínútur í leiknum.
VF-myndir / Sölvi Logason
.
.