Grindvíkingar með auðveldan sigur á Haukum
Grindavík lék í gær við Hauka í annarri umferð Mjólkurbikars kvenna. Leikið var á Ásvöllum og var aldrei spurning um hvort liðið færi með sigur af hólmi en Grindvíkingar skoruðu sex mörk gegn einu.
Leikurinn var ekki gamall þegar fyrsta markið leit dagsins ljós, Viktoría Sól Sævarsdóttir braut ísinn strax á 1. mínútu og Jasmine Aiyana Colbert tvöfaldaði forystuna skömmu síðar (5'). Þess má geta að Jasmine var að leika fyrsta leik sinn með Grindvíkingum en tvíburasystir hennar, Jana Lenise Colbert, skoraði opnunarmark Grindavíkur í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins.

Staðan var 0:2 í hálfleik en Haukar minnkuðu muninn snemma í seinni hálfleik (54'). Haukar urðu svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark (63') og eftir það skoraði Grindavík þrjú mörk til viðbótar, Arianna Lynn Veland gerði tvö (72' og 81') og Sigríður Emma F. Jónsdóttir eitt (81').
Grindavík er því komið í sextán liða úrslit sem verða leikin 27. og 28. maí.