Mánudagur 11. ágúst 2003 kl. 09:22
Grindvíkingar lágu í Eyjum

Grindvíkingar töpuðu fyrir ÍBV, 1-0, á útivelli í 13. umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn var frekar bragðdaufur, bæði lið léku varfærnislega þó gestirnir væru hættulegri framan af. Markið kom á 83. mínútu en það var Steingrímur Jóhannesson sem skoraði það. Það má segja að hann hafi slökkt í vonarneista Grindvíkinga um að verða meistarar því sjö stig eru í efstu tvö liðin, Fylki og KR þegar fimm umferðir eru eftirlGrindvíkingar eru í 4. æsti deildarinnar með 19 stig, jafn mörg stig og ÍBV sem er í 3. sæti. Þess má geta að aðeins tvö stig skilja að liðið í 3. sæti og liðið í 8. sæti.