Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindvíkingar knýja fram oddaleik
Laugardagur 12. mars 2005 kl. 23:15

Grindvíkingar knýja fram oddaleik

Keflvíkingar gátu sent Grindvíkinga í langt sumarfrí með sigri í dag en Grindvíkingar voru aldeilis ekki á þeim buxunum og unnu deildarmeistarana 87-76, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum.

Nick Bradford byrjaði vel, og skoraði fyrstu sex stig gestanna. Keflvíkingar byrjuðu betur og var þar einna helst að þakka leik Magnúsar Gunnarssonar sem lék með sérhannaða grímu um andlitið til að hlífa nefi sínu eftir þungt högg í síðasta leik. Magnús dúndraði niður þremur þriggja stiga körfum í  fyrsta fjórðungnum. Maðurinn með grímuna var ekkert að hlífa sér og hikaði ekki við að keyra upp að körfu Grindvíkinga. Keflvíkingar lentu í miklu áfalli eftir aðeins þrjár mínútur þegar að Gunnar Einarsson missteig sig illa og var borinn af leikvelli sjárþjáður. Gunnar spilaði ekki meira í leiknum. Terrel Taylor var ekki vinsæll meðal áhorfenda Keflvíkinga sem bauluðu á hann í hvert skipti sem hann fékk boltann. Baulið virtist ekki hafa mikil áhrif á hann því Terrel var gríðarlega sterkur undir körfunni á upphafsmínútunum. Helgi Jónas sem hefur verið meiddur undanfarið, var mættur með trompi og var ógnandi fyrir utan þriggja stiga línuna. Keflvíkingar komust í 12-17 en Grindvíkingar náðu að jafna leikinn 17-17 og þannig stóð í lok fyrsta leikhluta.

Annar leikhluti byrjaði fjörlega og setti Helgi Jónas niður þriggja stiga körfu langt fyrir utan línuna. Darrel Lewis var að skora auðveldar körfur fyrir Grindvíkinga sem voru lagnir við að finna kappann á góðum stöðum. Anthony Glover var prímusmótor Keflvíkinga í sókninni og réð vörn Grindvíkinga ekkert við hann í teignum. Jeff Boschee var að hitta vel fyrir Grindvíkinga og skoraði 10 stig fyrir Grindavík í öðrum fjórðung. Darrel Taylor fékk þriðju villu sína þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og var hvíldur það sem lifði hálfleiksins. Það virtist ekki koma að sök og Grindvíkingar tóku völdin á vellinum og Björn Steinar Brynjólfsson lokaði fyrri hálfleik með mikilvægri þriggja stiga körfu, 48-41 í hálfleik fyrir Grindvíkinga sem voru að spila fanta vörn ásamt því að Keflvíkingar voru að klikka úr auðveldum skotum.

Magnús Gunnarsson og Anthony Glover byrjuðu seinni hálfleikinn að fá báðir sína þriðju villu. Liðin byrja seinni hálfleikinn á að skiptast á körfum. Nick Bradford var með fínar hreyfingar undir körfunni sem skilaði góðum körfum og Helgi Jónas var farinn að láta finna fyrir sér og var að spila góða vörn og var síógnandi fyrir utan. Þá gerist leiðinlegur atburður þar sem áhorfendur Keflvíkinga láta Helga Jónas heyra það á hliðarlínunni þegar hann er í þann mund að taka innkast uppvið stuðningsmenn Keflavíkur, þá gekk Terrel Taylor að og fékk hann nokkur vel vönduð orð í eyra frá stuðningssveit Keflvíkinga, dómari leiksins þurfti að stöðva leikinn og láta gæslumenn róa mannskapinn niður. Það var þó ekki nóg því stuttu seinna var áhorfanda Grindvíkur vikið úr húsi. Leikurinn hélt þó áfram og fékk Magnús Gunnarsson sína fjórðu villu, og var ekki paránægður með hana. Grindvíkingar lokuðu öllum holum í vörn sinni og sigu hægt og bítandi framúr Keflvíkingum. Keflvíkingar réðu ekkert við Darrel Lewis og Jeff Boschee sem fengu alltof mikinn tíma til að athafna sig. Jón Hafsteinsson og Darrel Lewis fengu báðir sína fjórðu villu þegar um 2 mínútur lifðu af þriðja leikhluta og staðan 60-57 og Keflvíkingar virkilega farnir að narta í hælana á Grindvíkingum. Þá koma Grindvíkingar með frábæran kafla og skora átta stig í röð með þriggja stiga körfu frá Þorleifi og fimm stigum frá Jeff Boschee og staðan orðin 68-57 fyrir Grindvíkinga í lok þriðja leikhlutar.

Síðasti leikhluti var eign Helga Jónasar Guðfinnssonar. Keflvíkingar náðu aldrei að saxa almennilega á forskot Grindvíkinga. Ef þeir gerðu sig líklega slökkti Helgi Jónas vonina á augabragði með mikilvægum körfum. Keflvíkingar komust lítt áleiðis gegn sterkri vörn Grindavíkur og var sóknarleikur liðsins tilviljunarkenndur. Hugsanlega söknuðu þeir fyrirliða síns, Gunnars Einarssonar sem meiddist á fyrstu mínútunum. Grindvíkingar áttu alltaf svar upp í erminni og Keflvíkingar voru ráðlausir gegn mjög svo öflugu Grindavíkurliði í dag, og ljóst er að Helgi Jónas Guðfinnson er óðfluga að komast í leikform, sem ætti að kæta Grindvíkinga. Leikurinn endaði 87-76 og var nokkuð þægilegur sigur fyrir Grindvíkinga. Þessi úrslit þýða að Grindvíkingar hafa tryggt sér hreinan úrslitaleik um hvort liðið fer áfram í fjögurra liða úrslit. Sá leikur verður í Sláturhúsinu í Keflavík og verður án efa rafmagnaður.

Stigahæstir í liði Grindvíkinga var Helgi Jónas Guðfinnson og Jeffrey Boschee, báðir með 22 stig. Helgi Jónas setti niður fimm þriggja stiga körfur og var öflugur í vörn. Darrel Lewis var með 21 stig og Terrel Taylor var með 16 stig og 12 fráköst.

Stigahæstur hjá Keflvíkingum var Anthony Glover með 30 stig og 11 fráköst. Magnús Gunnarsson var með 18 stig líkt og Nick Bradford sem var einnig með18 stig og 10 fráköst.

Einar Einarsson var að vonum ánægðari í leikslok í dag heldur en á fimmtudaginn. „Þetta var mjög sætt, við höldum einvíginu gangandi. Við spiluðum massa vörn, þetta er það lægsta sem við höfum fengið á okkur í vetur, ég meina 76 stig og það á móti Keflavík”. Einar var mjög ánægður að fá Helga Jónas sterkan inn og sagði það veita liðinu mikið sjálfstraust.

Páll Axel Vilbergsson, fyrirliði Grindvíkinga var ánægður með að knýja fram oddaleik. „Þetta var algjört must að vinna þennan leik svo við höldum okkur inn í þessari keppni og þurfum ekki að segja bless strax. Þessi karfa sem við sýndum í dag er það sem býr í liðinu og við þurfum að halda áfram að kalla það fram”. Hann var að vonum ánægður með að fá félaga sinn Helga Jónas svona öflugan tilbaka.  „Það er gott að fá góða menn til baka og það er frábært að fá hann svona heitan”  Páll Axel sagði að þeir geti alveg spilað svipaðan leik gegn Keflvíkingum á miðvikudag og hlakkaði til viðureignarinnar.

Sigurður Ingimundarsson, þjálfari Keflvíkinga, var ekki sáttur við sóknarleik liðsins í dag „Sóknarleikurinn var vægast sagt lélegur hjá okkur, við vorum að klikka úr auðveldum færum trekk í trekk og það er spurning hvort að þeir menn sem voru að klikka úr þessum færum hafi einfaldlega verið tilbúnir í þennan leik, ég efa það.” Hann sagði að meiðsli Gunnars hafi riðlað leik liðsins enda Gunnar mikilvægur hlekkur í liði Keflvíkinga en Sigurður bjóst við að fyrirliðinn yrði tilbúinn í slaginn á miðvikudag enda hörkutól.


Tölfræði leiksins

VF-Myndir:/Hilmar Bragi

 

 

 

 

 

 

 

 

    

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn