Grindvíkingar í góðum málum á toppnum
Topplið Grindvíkingar vann góðan 0-2 útisigur á Fjölni í 1. deild kvenna í fótbolta. Grindvíkingar styrktu þannig stöðu sína á toppnum í B-riðli þar sem þær hafa sex stiga forystu á Hauka og tíu á Keflavík. Linda Eshun skoraði bæði mörk Grindvíkinga í leiknum í gær en þau komu bæði í fyrri hálfleik.