Grindvíkingar í 8 liða úrslit!
Grindvíkingar töpuðu 88-90 gegn KR-ingum í hörku spennandi leik í Röstinni í kvöld. Það var Grindvíkingum til happs að Njarðvík sigraði Hauka í Ljónagryfjunni sem þýðir að Grindvíkingar eru komnir í 8 liða úrslit Intersport-deildarinnar.
Grindvíkingar byrjuðu af krafti og komust í 8-0. KR-ingar voru þó ekki lengi að ná forskoti Grindvíkinga og jöfnuðu 10-10 og komust fljótlega í 10-17. Darrel Lewis, Helgi Jónas og Páll Axel voru að spila vel í byrjun fyrir Grindvíkinga og náðu Grindvíkingar að klóra í bakkann og var staðan 25-26 í lok fyrsta leikhluta.
Annar leikhluti byrjaði skemmtilega og náðu Grindvíkingar fjögurra stiga forskoti 32-28 í kafla þar sem Helgi Jónas var með 5 stig. Grindvíkingar voru hinsvegar í miklum vandræðum með Cameron Echols undir körfunni og reif hann 14 fráköst í fyrri hálfleik. Grindvíkingar skiptust á að setja Morten Szmiedowicz og Terrel Taylor á Cameron en hann var sjóðandi á köflum. Grindvíkingar voru mikið að brjóta á þessum kafla og KR-ingar mikið á vítalínunni. Allt var í járnum í hálfleik og staðan 47-47.Darrel Lewis var atkvæðamestur Grindvíkinga í hálfleik með 16 stig og Jeffrey Boschee með 11, Helgi Jónas var með 7 stig í hálfleiknum og fjögur fráköst þrátt fyrir að spila bara 7 mínútur í fyrri hálfleik. Cameron átti góðan fyrri hálfleik í liði KR-inga með 19 stig og 14 fráköst.
Jeffree Boschee var að spila fínan leik fyrir Grindvíkinga og var að velja góð skot og með góða nýtingu. KR-ingar komust í stöðuna 57-62 í síðari hálfleik en tvær góðar körfur frá Morten Szmiedowicz lagaði stöðuna fyrir Grindavík í 61-62. Í lok þriðja leikhluta var staðan 69-69 og lauk Páll Axel þriðja fjórðung með tveimur góðum körfum.
Grindvíkingar byrjuðu hinsvegar fjórða leikhluta afleitlega og KR-ingar komust í 69-76 og skoruðu Grindvíkingar ekki stig í fyrstu þremur og hálfri mínútu fjórða leikhluta. Þá kom Helgi Jónas til skjalanna og hamraði einni þriggja stiga niður sem kveikti aðeins í Grindvíkingum og þeir náðu að saxa forskotið niður í eitt stig 79-80. Framundan voru æsispennandi lokamínútur og Cameron var allt í öllu hjá KR-ingum og skoraði mikilvægar körfur og KR-ingar komust í 81-84. Jeff Boschee hinsvegar gerði tvær góðar körfur og staðan 85-88 og spennan gríðarleg og innan við tvær mínútur eftir. Boschee jafnaði svo leikinn með þriggja stiga körfu og allt í járnum 88-88. KR-ingar náðu þó að stela sigrinum og skoruðu körfu inn í teig 88-90. Grindvíkingar fengu þó færi á að gera útum leikinn en misnotuðu þriggja stiga skot á lokasekúndum leiksins.
Það var hinsvegar ljóst eftir leik að Grindvíkingar komust áfram í átta liða úrslit Intersport deildarinnar þar sem Njarðvíkingar sigruðu Hauka naumlega 91-89. Grindvíkingar voru hinsvegar fúlir í leikslok því þeir vildu innilega sigra leikinn. Því er ljóst að Grindvíkingar mæta Keflvíkingum í átta liða úrslitum sem hefjast eftir 10 daga.
Stigahæstur hjá Grindavík var Darrel Lewis með 29 stig, 7 fráköst og 5 stolna bolta og var hann jafn og góður yfir allan leikinn. Jeffrey Boschee var með góða skotnýtingu og endaði með 20 stig. Páll Axel Vilbergsson og Helgi Jónas Guðfinnsson voru með 10 stig hvor. Helgi spilaði aðeins í 19 mínútur og er ljóst að hann er en að glíma við meiðsli. Terrel Taylor var sterkur í fráköstum og hirti 15 fráköst og skoraði 7 stig.
Hjá KR átti Cameron Echols stórleik, hann skoraði 35 stig og tók 21 frákast og áttu Grindvíkingar engin svör við hans leik á köflum.Einar Einarsson, þjálfari Grindvíkinga var feginn að komast í úrslit þrátt fyrir tap og sagði liði hafa spilað ágætlega, „Við vorum að spila ágætlega svosem og vorum að fá fín skot, en við getum þakkað Njarðvíkingum nett fyrir að vera komnir í úrslitakeppnina.“ Hann var ekkert smeykur við að mæta Keflvíkingum og stefndi á titilinn „Fínt að fá Keflavík, við þurfum hvort eð er að sigra þá til að vinna titilinn og við verðum tilbúnir, það er nokkuð ljóst.“
VF-Myndir/Bjarni