Grindvíkingar fá þýskan leikmann
Grindvíkingar munu á næstu dögum ganga frá samningum við 30 ára þýskan miðjumann að nafni Robert Niestroj. Nistroj spilar með liði í 4. deild í Þýskalandi og kemur til Grindvíkinga eftir að þýska deildin klárast um miðjan maí.
Þá eru Grindvíkingar með 22 ára gamlan sóknarmann frá Frakklandi til reynslu sem heitir Mounir Ahandour og mun hann leika með liðinu æfingaleik gegn Fylki í kvöld og framhaldið með Mounir mun skýrast fljótlega eftir það að sögn Ingvars Guðjónssonar, framkvæmdarstjóra knattspyrnudeildar UMFG.
Vf-mynd/úr safni