Grindvíkingar fá markvörð frá Serbíu
Pepsi-deildarlið Grindavíkur hefur gert samning við markmanninn Vladan Djogatovic. Vladan er Serbi og kemur frá liðinu FK Javor í Serbíu.
Hann hefur spilað 23 leiki í haust með serbneska liðinu en það er og er í efsta sæti í serbnesku fyrstu deildinni. Vladan er reynslumikill markmaður en hann hefur spilað vel á þriðja hundrað leiki í efstu deildum í Serbíu.