Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Grindvíkingar fá Fylkismenn í heimsókn
Miðvikudagur 8. júní 2016 kl. 09:14

Grindvíkingar fá Fylkismenn í heimsókn

Víðismenn heimsækja KR bana á morgun

Í kvöld verður barist í 16 liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta þar sem Suðurnesjamenn verða í eldlínunni. Grindvíkingar fá þá Fylkismenn í heimsókn á Grindavíkurvöll en Árbæingar slógu Keflvíkinga út í síðustu umferð. Grindvíkingar unnu góðan sigur á KA í 32 liða úrslitum og eru á mikilli siglingu í 1. deildinni. Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Grindavíkurvelli.

Á morgun leika Víðismenn svo á móti Selfyssingum á útivelli. Víðismenn hafa ekki tapað leik það sem af er sumri og virðast í miklu stuðu. Það verður forvitnilegt að sjá hvað liðið úr 3. deild gerir á móti liðinu úr 1. deild sem sló KR úr bikarnum.

Hér að neðan er innslag Sjónvarps Víkurfrétta frá því í síðustu viku þar sem fjallað er um nágrannaslagi Keflavíkur og Grindavíkur, bæði í karla og kvenna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024