HSS
HSS

Íþróttir

Grindvíkingar fá bandaríska stórskyttu
Fimmtudagur 5. ágúst 2010 kl. 13:23

Grindvíkingar fá bandaríska stórskyttu

Það líður óðum að næstu leiktíð í körfuboltanum og eru forsvarsmenn liðanna þessa dagana að ganga frá leikmannamálum og sinna öðrum undirbúningi. Fréttir berast frá Grindavík þess efnis að úrvalsdeildarlið Grindavíkur í karlaflokki hafi nælt í stórskyttu úr bandaríska háskóla-körfuboltanum og hefur kappinn sá getið sér frægðar fyrir met í þriggja stiga skotum.

Leikmaðurinn heitir Andre Smith, kallaður Dre. Hann komst í sögubækurnar vorið 2008 þegar hann hitti úr öllum tíu þriggja stiga skotum sínum í leik með George Mason á móti James Madison. Þetta hafði enginn leikið áður. Aðeins þrír leikmenn í deildinni höfðu áður náð níu 3ja stiga skotum í röð.

Sjá nánar hér

Bílakjarninn
Bílakjarninn