Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Grindvíkingar byrja upphitun fyrir stórleikinn kl. 13
Föstudagur 10. apríl 2009 kl. 23:55

Grindvíkingar byrja upphitun fyrir stórleikinn kl. 13

Mikið er í húfi þegar Grindavík mætir KR í Röstinni á laugardag kl. 16:00, eða sjálfur Íslandsmeistaratitillinn. Fáir miðar eru eftir og má búast við rosalegri stemmningu. Upphitun fyrir leikinn hefst kl. 13:00 í Salthúsinu með pylsuveislu. Árni Johnsen mætir á staðinn með gítarinn til að hita mannskapinn upp.

Hreimur úr Landi og sonum hitar svo upp í Röstinni fyrir leik og verður að sjálfsögðu í Grindavíkurbúningnum en Jónsi í Svörtum fötum mætir í búningi KR og tekur KR-lagið. Hreimur mun svo væntanlega taka að lokum lagið Lífið er yndislegt.
Egill Birgisson er búinn að klippa saman nýtt myndband sem sýnt verður fyrir leikinn og allt kapp verður lagt á að gera umgjörðina sem glæsilegasta.
Svo er það undir strákunum komið hvort Grindavík tekst að landa Íslandsmeistaratitlinum og það í annað sinn í sögu félagsins, segir á www.grindavik.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024