HSS
HSS

Íþróttir

Grindvíkingar byrja árið vel
Sunnudagur 6. janúar 2013 kl. 12:27

Grindvíkingar byrja árið vel

Grindavíkurstelpur byrjuðu nýja árið með látum í Dominos-deild kvenna í körfubolta þegar þær sigruðu  KR í með 67 stigum gegn 56. Grindavíkurstelpur börðust eins og grenjandi ljón allan tímann og var sigurinn fyllilega verðskuldaður.

KR lék án bandarísks leikmanns og hafði það eflaust talsvert að segja. En það verður ekki tekið af heimastúlkum að þær léku mjög vel í fyrri hálfleik og var staðan 36-24 Grindavík í vil. Þessi munur hélst meira og minna allan seinni hálfleilkinn og sigurinn tiltölulega þægilegur og öruggur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Petrúnella Skúladóttir sem var stigahæst með 22 stig, 11 fráköst og 6 stolna bolta. Crystal Smith þjálfari var með 16 stig og 5 stolna bolta. Helga Rut Hallgrímsdóttir var með 10 stig og 10 fráköst.