Grindvíkingar áfram í bikarnum
Keflavík-b fær Njarðvík í heimsókn
Grindvíkingar eru komnir í 16 liða úrslit bikarkeppni karla í körfubolta eftir öruggan sigur gegn liði KV. Lokatölur urðu 43-99 í öruggum sigri ríkjandi bikarmeistaranna. Hitt liðið frá Grindavík, ÍG, þurfti að sætta sig við tap gegn Tindastólsmönnum, 72-99.
Í kvöld fara fram sex leikir og ber þar hæst að nefna viðureign b-liðs Keflavíkur og Njarðvíkur sem fram fer í TM-höllinni klukkan 19:15.