Grindvíkingar að hlið Fylkismanna
Grindvíkingar unnu sigur á botnliði Stjörnunnar í kvöld með tveimur mörkum gegn engu og eru þar með komnir í annað sæti Landssímadeildarinnar. Grindvíkingar eru jafnir Fylki að stigum en Fylkir hefur hagstæðara markahlutfall. Leikurinn var nokkuð jafn framan af, enda setti rok og rigning mark sitt á leikinn. Bæði lið fengu dauðafæri í fyrri hálfleik, en náðu ekki að nýta sér þau. Það var ekki fyrr en á 72. mínútu sem fyrsta mark leiksins var skorað, en þar var að verki Ólafur Örn Bjarnason, sem skoraði með góðum skalla eftir hornspyrnu frá Scott Ramsey. Á 87. mínútu var það síðan Sverrir Þór Sverrisson sem gulltryggði Grindvíkingum sigur, þegar hann lagði boltann í netið eftir að Sinisha Kekic hafði átt misheppnað skot að marki.Grindvíkingar hafa nú ásamt Fylkismönnum blásið á þær hrakspár sem menn héldu uppi fyrir leiktíðina, en báðum liðum var spáð falli úr deildinni í sumar.