Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Grindvíkingar áberandi í landsliðshópnum í körfubolta
Þriðjudagur 7. júní 2011 kl. 16:42

Grindvíkingar áberandi í landsliðshópnum í körfubolta

- Magnús Gunnarsson ekki í hóp

Fyrsti landsliðhópur Peter Öqvist nýs landsliðsþjálfara Íslands í körfubolta hefur verið valinn fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Sundsvall í sumar. Um er að ræða æfingarhóp þar sem 22 leikmenn munu kljást um sæti í lokahópnum sem heldur utan til Svíþjóðar þann 20. júlí. Í hópnum eru sjö Suðurnesjamenn og þar af eru fjórir frá Grindavík, þeir Páll Axel Vilbergsson, Jóhann Árni Ólafsson, Ólafur Ólafsson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Njarðvíkingar eiga sína fulltrúa þó ekki leiki þeir núna með Njarðvíkingum en Logi Gunnarsson og Guðmundur Jónsson eru í hópnum auk þess sem Keflvíkingurinn Hörður Axel Vilhjálmsson var valinn. Kannski vekur athygli að Magnús Gunnarsson er ekki í hóp en hann á að baki fjölda landsleikja og hefur m.a verið fyrirliði liðsins.

Alls voru valdir 22 leikmenn.

Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:

Jakob Sigurðarson, Sundsvall
Hlynur Bæringsson, Sundsvall
Jón Arnór Stefánsson, Granada
Logi Gunnarsson, Solna
Helgi Magnússon, Uppsala
Pavel Ermolinskij, KR
Brynjar Þór Björnsson, KR
Hreggvidur Magnússon, KR
Finnur Atli Magnússon, KR
Jón Orri Kristjánsson, KR
Fannar Ólafsson, KR
Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík
Hörður Vilhjálmsson, Keflavík
Jón Ólafur Jónsson, Snæfell
Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Snæfell
Emil Jóhannsson, Snæfell
Guðmundur Jónsson, Þór Þorlákshöfn
Sveinbjörn Claessen, ÍR
Páll Axel Vilbergsson, Grindavík
Ólafur Ólafsson, Grindavík
Fannar Helgason, Stjörnunni
Jóhann Árni Ólafsson, Grindavík

Fyrstu æfingar verða helgina 10. - 12. júní

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024