Grindavíkurstúlkur úr leik í bikarnum
16 liða úrslitin í Subwaybikar karla og kvenna hófust í gærkvöldi og dró það helst til tíðinda að Bikarmeistarar Grindavíkurkvenna eru úr leik eftir 53-55 ósigur gegn Val. Valskonur settu niður tvö víti þegar fjórar sekúndur voru eftir og reyndust það sigurstig leiksins. Keflavíkurstúlkur unnu Snæfell örugglega í Stykkishólmi 74-93. Njarvíkurstúlkur töpuðu fyrir KR í Ljónagryfjunni 89-46.
16 liða úrslitum í kvennaflokki lýkur í kvöld með þremur leikjum þegar Haukar fá KR B í heimsókn, Fjölnir tekur á móti Grindavík B og Hekla og Ármann mætast.
Í karlaflokki mættust Grindavík og Grindavík B þar sem þeir fyrrnefndu höfðu öruggan sigur 63-127. Bumbulið KR tapaði naumt gegn Haukum 74-80 í tvíhöfða í Vesturbæ en úrvalsdeildarlið KR afgreiddi 1. deildarlið Fjölnis 99-74. Í kvöld eru svo fjórir leikir í karlaflokki þar sem Keflavík tekur á móti Hetti, ÍR spilar heima gegn Tindastóli, Stjarnar leikur við íBV í Eyjum og Skallagrímur tekur á móti Val. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.