Grindavíkurstúlkur tryggja sér annað sætið
Grindvíkingar tryggðu sér í kvöld annað sætið í 1. deild kvenna í körfuknattleik eftir sigur á ÍS 58-54 í Grindavík í kvöld. Stúdínur áttu möguleika á að komast uppfyrir Grindavík í deildinni, Grindavíkurstúlkur hinsvegar tryggðu sér heimavallarrétt með sigrinum.
Grindavík skoraði aðeins 6 stig í fyrsta leikhluta, 6-16 og Stúdínur leiddu leikinn og voru yfir allt til fjórða leikhluta, staðan í hálfleik var 24-30 Stúdínum í vil. Grindavíkurstúlkur reyndust þó sterkari í lokakaflanum og unnu mikilvægan sigur 58-54. Rita Williams spilaði sinn fyrsta leik fyrir Grindvíkinga í kvöld. Erla Þorsteinsdóttir sem hefur verið að glíma við erfið meiðsli á tímabilinu var að sinna góðri varnarvinnu í leiknum, en ljóst er að meiðsli hennar eru ekki á enda og fann hún fyrir þeim í leiknum.
Rita Williams var stigahæst hjá Grindavík í kvöld með 17 stig og 8 fráköst. Jovana Stefánsdóttir var með 10 stig, Erla Reynisdóttir 9 og Ólöf Pálsdóttir 7.
Henning Henningsson sagðist eftir leikinn vera mjög ánægður með að fá heimaleikja rétt í 4. liða úrslitum og að liðið muni vinna útfrá því. Hann var ekki alveg sáttur við Ritu Williams í leiknum, en hafði þó ekki áhyggjur af framhaldinu hjá henni því þetta var fyrsti leikurinn hennar og enginn vafi léki á því að hún væri hörku leikmaður, og ætti eftir að finna sig í næsta leik.
Þá er ljóst að Grindvíkingar mæta Haukum í fjögurra liða úrslitum og Keflavík mætir ÍS.
VF-Myndir:/Hilmar Bragi